Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 16. september 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Barcelona gerði tilboð í Aubameyang
Mynd: Getty Images
Barcelona lagði fram tilboð í Pierre-Emerick Aubameyang áður en hann skrifaði undir nýjan þriggja ára samning hjá Arsenal í gær.

Sky Sports segir að Barcelona hafi boðið í leikmanninn í sumar.

Inter hafði einnig áhuga á Aubameyang en hann ákvað á endanum að framlengja við Arsenal.

Fyrri samningur Aubameyang átti að renna út næsta sumar en viðræður um nýjan samning hafa staðið lengi yfir.

Hinn 31 árs gamli Aubameyang ákvað á endanum að semja en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, átti stóran þátt í þeirri ákvörðun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner