Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. desember 2018 06:00
Arnar Helgi Magnússon
„Icardi er hinn fullkomni framherji"
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi skoraði sigurmark Inter Milan úr vítaspyrnu gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Icardi hefur farið mikinn á tímabilinu og er kominn með þrettán mörk. Luciano Spalletti, þjálfari Inter er hæstánægður með Icardi og lýsir honum sem hinum fullkomna framherja.

„Hann klárar það sem að sem að liðsfélagar hans undirbúa fyrir hann. Hann er þessi fullkomni framherji. " segir Spalletti.

„Það koma leikir sem að andstæðingurinn pressar okkur hátt þá þarftu að hafa framherja sem er duglegur að hlaupa inn fyrir varnir andstæðinganna."

„Í síðustu leikjum hefur Icardi gert þetta frábærlega, og er tölfræðin eftir því."

Inter er í þriðja sæti deildarinnar, fjórtán stigum á eftir toppliði Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner