Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2023 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Glódís hitti íslenska aðdáendur á flugvelli
Mynd: Getty Images

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern Munchen eru á leið til Mexíkó þar sem liðið mun spila æfingaleik við Tigres á laugardaginn.


Á flugvellinum á leiðinni til Mexíkó hitti Glódís þar þrjár íslenskar stelpur sem fengu mynd af sér með íslenska miðverðinum og tóku létt spjall.

Bayern birti myndband af því á Twitter síðu sinni.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er einnig í leikmannahópnum sem ferðaðist til Mexíkó.

Þýska deildin er í vetrarfríi en liðið hefur ekki spilað keppnisleik í tæpan mánuð. Liðið var við æfingar í Doha í Katar fyrr í þessum mánuði.


Athugasemdir
banner
banner