Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. maí 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Dybala hágrét eftir leikinn gegn Lazio - „Vonandi sjáumst við fljótlega"
Paulo Dybala
Paulo Dybala
Mynd: Getty Images
Paulo Dybala, leikmaður Juventus á Ítalíu, hágrét eftir 2-2 jafnteflið gegn Lazio á Allianz-leikvanginum í gær en þetta var síðasti heimaleikur hans fyrir liðið.

Dybala hefur staðfest að hann yfirgefi félagið í sumar þar sem hann náði ekki samkomulagi við Juventus um nýjan samning.

Það eru miklar líkur á því að hann gangi í raðir Inter en hann átti erfitt með að halda tárunum aftur eftir leikinn í gær.

Argentínski leikmaðurinn hágrét er hann þakkaði fyrir sig og fékk þá falleg skilaboð frá franska miðjumanninum Paul Pogba eftir leik.

„Bróðir, þú ert toppleikmaður og toppmaður. Það er frábært að eiga þig sem vin og hafa deilt þessum augnablikum með þér. Vonandi sé ég þig bráðlega," sagði Pogba á Twitter.




Athugasemdir
banner
banner