Matthijs de Ligt, leikmaður Hollands, átti afar góðan leik gegn Austurríki í kvöld.
Holland tryggði sér sæti í 16-liða úrslit keppninnar með 2-0 sigri. Memphis Depay og Denzel Dumfries gerðu mörkin.
De Ligt er mættur aftur í byrjunarlið Hollands eftir meiðsli og stóð sig virkilega vel í hafsentnum.
Tölfræði De Ligt í leiknum er aðdáunarverð en hann klikkaði ekki á einni sendingu á liðsfélaga.
De Ligt reyndi 40 sendingar í þessari viðureign og heppnuðust þær allar sem er ekki algengt.
🎯 Matthijs de Ligt completed 100% of his attempted passes (40/40) vs Austria tonight
— WhoScored.com (@WhoScored) June 17, 2021
💪 Decent way to make your comeback from injury #NED #EURO2020
Athugasemdir