Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. júní 2022 14:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Griezmann vill vera áfram hjá Atletico Madrid
Mynd: EPA

Antoine Griezmann leikmaður Barcelona vill vera áfram hjá Atletico Madrid þar sem hann var á láni á síðustu leiktíð.


Þessi 31 árs gamli Frakki gekk til liðs við Ateltico fyrir síðustu leiktíð en félagið getur framlengt lánið um eitt ár til viðbótar og keypt hann síðan fyrir 40 milljónir evra.

Sögusagnir fóru af stað um að Marcelo Bielsa fyrrum stjóri Leeds United væri á leið til Athletic Bilbao og vildi fá Griezmann með sér en sá síðar nefndi þvertekur fyrir það.

Griezmann lékk 38 leik fyrir Atletico á síðustu leiktið og skoraði 8 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner