Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 22:30
Victor Pálsson
Jorginho: Enginn hefur unnið meira en ég
Mynd: EPA
Jorginho, leikmaður Chelsea, minnir fólk á það að en ginn leikmaður hafi unnið meira á tímabilinu en hann fyrir valið á Ballon d'Or en þau verðlaun eru afhent besta leikmanni heims á hverju ári.

Jorginho vann Meistaradeildina með Chelsea fyrr í sumar og fagnaði svo einnig sigri á EM alls staðar með Ítalíu.

Jorginho veit að hann er ekki hæfileikaríkasti leikmaður heims en það vantar þó ekki í titlasafnið á þessu ári.

„Við eigum okkur öll drauma. Þetta snýst allt um hvað þeir dæma þetta frá," sagði Jorginho við SporTV.

„Ef við erum að tala um hæfileika þá veit ég að ég er ekki sá besti í heiminum. Ef við erum að tala um titla þá hefur enginn unnið meira en ég á tímabilinu."

„Hvernig gæti ég samt borið mig saman við Lionel Messi, Neymar eða Cristiano Ronaldo? Þeir eru með allt aðra eiginleika en ég. Ég endurtek, þetta veltur á þeirra dómgæslu."
Athugasemdir
banner
banner
banner