Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. júlí 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gabriel Jesus kominn með þrjú mörk í tveimur leikjum
Mynd: Getty Images

Arsenal 2-0 Everton
1-0 Gabriel Jesus ('33)
2-0 Bukayo Saka ('36)

Arsenal sigraði Everton í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt.


Gabriel Jesus lék annan leik sinn fyrir Arsenal síðan hann kom til félagsins frá Manchester City. Hann skoraði tvö mörk í 5-3 sigri liðsins á Nurnberg á dögunum.

Hann var í byrjunarliðinu í nótt og kom Arsenal yfir með marki á 33. mínútu leiksins. Aðeins þremur mínútum síðar lagði hann upp mark á Bukayo Saka.

Mörkin urðu ekki fleiri og því fór Arsenal með sigur af hólmi.



Athugasemdir
banner
banner
banner