Arsenal og Napoli mætast í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en dregið var á föstudag.
Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, segir að mjög erfitt verkefni bíði Arsenal í þessari tveggja leikja viðureign.
Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, segir að mjög erfitt verkefni bíði Arsenal í þessari tveggja leikja viðureign.
„Ég verð að sjálfsögðu stuðningsmaður Arsenal í þessum leik alveg eins og í öllum öðrum leikjum tímabilsins," segir Wenger.
„Ég þarf ekki að gefa Unai Emery nein ráð fyrir þessa viðureign. Ég er mikill aðdáandi Carlo Ancelotti, hann er einn færasti þjálfari í heimi."
„Hann leggur gríðarlega mikla vinnu í liðin sín. Samt sem áður held ég að það henti Arsenal ágætlega að spila gegn Napoli en þetta verður virkilega, virkilega erfitt fyrir Arsenal.
Fyrri leikurinn fer fram á Emirates þann 11. apríl og síðari leikurinn á Ítalíu viku síðar.
Athugasemdir