Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. júní 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna í dag - Brasilía og Ítalía eigast við
Mynd: Getty Images
Síðasta umferð C-riðils á heimsmeistaramóti kvenna fer fram í kvöld og er risaslagur á dagskrá.

Spútnik lið Ítalíu spilar þar við sterkt lið Brasilíu í afar mikilvægum leik þar sem allt er undir.

Ítalía er með sex stig, Brasilía þrjú og Ástralía þrjú fyrir lokaumferðina. Efstu tvö liðin fara beint upp ásamt fjórum bestu liðunum sem enda í 3.. sæti.

Jamaíka er svo gott sem úr leik, enda óheppið að lenda í dauðariðli. Jamaíka er stigalaust, með 0-8 í markatölu. Reggae stelpurnar mæta Áströlum í kvöld.

Leikir kvöldsins:
19:00 Ítalía - Brasilía (RÚV 2)
19:00 Jamaíka - Ástralía (RÚV.is)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner