Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 18. júlí 2018 21:31
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Víkingur Ó. sigraði Víking R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 0 - 1 Víkingur Ó.
0-1 Sasha Litwin ('88)
Lestu nánar um leikinn

Víkingur Ólafsvík hafði betur gegn Víkingi Reykjavík er liðin mættust í sannkölluðum Víkingaslag í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Leikurinn var afar bragðdaufur og var hvorugt liðið að koma sér í færi. Þegar allt stefndi á framlengingu náðu Ólsarar að pota inn sigurmarki rétt undir lokin.

Gonzalo Zamorano geystist þá upp hægri kantinn í góðri skyndisókn. Hann kom boltanum laglega á Sasha Litwin sem skoraði af stuttu færi.

Ólafsvíkingar mæta Breiðabliki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins fimmtudaginn 16. ágúst. Leikið verður til úrslita 15. september á Laugardalsvelli. Stjarnan og FH mætast einnig í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner