Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. júlí 2021 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið KR og Breiðabliks: Elmar og Mikkelsen á bekknum
Theodór Elmar Bjarnason byrjar á bekknum.
Theodór Elmar Bjarnason byrjar á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stórleikur 13. umferðarinnar í Pepsi Max-deildinni er á Meistaravöllum þar sem heimamenn í KR fá Breiðablik í heimsókn.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Byrjunarliðin fyrir leikinn eru klár og má sjá þau bæði í heild sinni hér að neðan.

Theodór Elmar Bjarnason byrjar áfram á bekknum hjá KR, en það eru tvær breytingar á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn Keflavík. Arnþór Ingi Kristinsson, sem skoraði sigurmarkið gegn Keflavík, byrjar ekki í kvöld og sömu sögu er að segja af Aroni Bjarka Jósepssyni. Inn koma Grétar Snær Gunnarsson og Kristján Flóki Finnbogason.

Síðasti deildarleikur Breiðabliks var 3. júlí gegn Leikni. Frá þeim leik gerir Óskar Hrafn Þorvaldsson þrjár breytingar. Árni Vilhjálmsson, Gísli Eyjólfsson og Davíð Örn Atlason byrja. Út fara Thomas Mikkelsen, Jason Daði Svanþórsson og Kristinn Steindórsson.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
10. Árni Vilhjálmsson
11. Gísli Eyjólfsson
21. Viktor Örn Margeirsson
24. Davíð Örn Atlason
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman

Leikir kvöldsins:
19:15 FH - Fylkir
19:15 KR - Breiðablik
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner