Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. mars 2021 19:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enski bikarinn: Þolinmæði City skilaði sér í tveimur mörkum
Mynd: Getty Images
Everton 0 - 2 Manchester City
0-1 Ilkay Gundogan ('84 )
0-2 Kevin De Bruyne ('90)

Manchester City er komið í undanúrslit ensku FA bikarkeppninnar ftir 0-2 útisigur á Everton.

City hélt boltanum mun betur í leiknum en Everton vörnin var þétt lungað úr leiknum. Gestirnir komust yfir á 84. mínúut þegar Ilkay Gundogan skallaði boltanum í netið eftir frákast.

Kevin De Bruyne bætti svo við öðru marki City á lokamínútu venjulegs leikíma eftir undirbúning frá Rodri sem var nýkominn inn á og þar við sat. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og lék allan leikinn.

Southampton og Manchester City eru því komin í undanúrslit en 8-liðin klárast með tveimur leikjum á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner