Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. mars 2021 16:17
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Guðný klettur í afar mikilvægum sigri Napoli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Napoli 3 - 1 Fiorentina
1-0 Isotta Nocchi ('5)
2-0 Isotta Nocchi ('11)
2-1 Melania Martinovic ('17)
3-1 Eleonora Goldoni ('38)

Guðný Árnadóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Napoli er liðið vann sinn annan deildarleik á tímabilinu.

Isotta Nocchi skoraði tvennu í upphafi leiks og var staðan orðin 3-1 fyrir Napoli í leikhlé. Andstæðingarnir voru Florentia sem er í fimmta sæti deildarinnar.

Lára Kristín Pedersen kom inn á 60. mínútu en meira var ekki skorað og urðu lokatölur 3-1.

Gríðarlega mikilvægur og nokkuð óvæntur sigur Napoli sem er í næstneðsta sæti með 8 stig eftir 16 umferðir.

Liðið getur þó bjargað sér frá falli þar sem San Marínó er aðeins einu stigi ofar, en þó með leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner