Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. nóvember 2021 07:30
Victor Pálsson
Dyche með góð ráð fyrir Vieira
Mynd: EPA
Sean Dyche, stjóri Burnley, gaf kollega sínum Patrick Vieira góð ráð er þeir hittust nýlega. Vieira er í dag stjóri Crystal Palace sem mætir einmitt Burnley á morgun.

Vieira er að reyna fyrir sér sem stjóri í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn en hann var áður leikmaður Arsenal og þekkir því vel til deildarinnar.

Dyche bað Vieira einfaldlega um að njóta tímans hjá Palace því ef illa gengur þá gæti allt farið úrskeiðis á stuttum tíma.

„Ég þekki hann ekki það vel en hitti hann óvænt nýlega. Ég sagði honum að njóta tímans þarna því þetta endist ekki alla eilífð,"sagði Dyche.

„Ég sagði þetta við hann því ég hef verið í sömu sporum. Í lok dags þá mun hann reyna sitt besta til að ná til leikmanna."

„Hann hefur verið nógu lengi í leiknum til að þekkja áskorun ensku úrvalsdeildarinnar."
Athugasemdir
banner
banner
banner