Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. apríl 2019 12:30
Arnar Helgi Magnússon
Emery vill vinna eitthvað sem skiptir máli
Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að vinna 32 leiki af fimmtíu á tímabilinu hingað til en enginn stjóri í sögu Arsenal hefur unnið jafn marga leiki í fyrstu fimmtíu leikjunum eins og Unai Emery.

Arsenal mætir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Þetta er frábær árangur og ég er mjög ánægður með þetta afrek. Auðvitað vill maður samt vinna alla leiki," segir Emery.

„Ég kom hingað til þess að vinna eitthvað sem að skiptir máli fyrir félagið. Við erum að bæta okkur og það er í okkar höndum að enda tímabilið á sérstakan hátt."

Arsenal á möguleika á því að vinna Evrópudeildina en liðið mætir Valencia í undanúrslitunum.

„Ég er stoltur af leikmönnunum og ekki síst klúbbnum. Ég er stoltur af stuðningsmönnunum og stöðunni sem að félagið er í í dag."

Athugasemdir
banner
banner
banner