Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 21. júní 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Raul tekinn við varaliði Real Madrid
Mynd: Getty Images
Raul, goðsögn hjá Real Madrid, er tekinn við Castilla, varaliði félagsins.

Raul þjálfaði Cadete B og Juvenil B, unglingalið Real, á nýliðinni leiktíð en fær nú stöðuhækkun.

Varaliðið spilar í 3. efstu deild í riðli 1, Segunda Division B. Liðið tapaði í umspili um að komast upp í næstefstu deld í vor.

Raul er næstmarkahæsti leikmaður Real í sögunni en hann skoraði 323 mörk á árunum 1994-2010. Cristiano Ronaldo er sá eini sem hefur skorað meira fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner