Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. júlí 2022 13:21
Elvar Geir Magnússon
Southampton kaupir ungstirni frá Bordeaux
Mynd: Getty Images
Southampton hefur komist að samkomulagi við franska félagið Bordeaux um kaup á nítján ára sóknarmanni liðsins, Sekou Mara.

Mara verður formlega orðinn leikmaður Southampton ef hann nær samkomulagi um kaup og kjör og stenst læknisskoðun.

Mara skoraði sex mörk í 26 leikjum á síðasta tímabili en Bordeaux féll úr frönsku úrvalsdeildinni.

Þessi sóknarmaður franska U21 landsliðsins er samtals með sjö mörk í 35 deildarleikjum fyrir Bordeaux.


Athugasemdir
banner
banner