Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. ágúst 2021 14:52
Brynjar Ingi Erluson
Erfið byrjun hjá Guðlaugi Victori
Guðlaugur Victor Pálsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Schalke sem tapaði 4-1 fyrir Jahn Regensburg í þýsku B-deildinni í dag.

Schalke féll úr efstu deild eftir síðustu leiktíð og missti marga öfluga leikmenn frá liðinu.

Liðinu hefur aðeins tekist að vinna einn leik úr fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.

Guðlaugur Victor kom til liðsins frá Darmstadt fyrir tímabilið en hann var í byrjunarliði Schalke í dag áður en honum var skipt af velli á 83. mínútu.

Schalke er í með 4 stig eftir fyrstu fjóra leikina og situr í 12. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner