Enska úrvalsdeildin klárast á morgun þegar lokaumferð deildarinnar fer fram.
Lokaumferðin:
15:00 Arsenal - Brighton
15:00 Aston Villa - Chelsea
15:00 Wolves - Man Utd
15:00 West Ham - Southampton
15:00 Sheffield Utd - Burnley
15:00 Man City - Everton
15:00 Leeds - West Brom
15:00 Fulham - Newcastle
15:00 Liverpool - Crystal Palace
15:00 Leicester - Tottenham
Það sem er spennandi fyrir þessa lokaumferð er hvaða lið munu ná í Evrópusæti.
Meistaradeildarbaráttan
Manchester City og Manchester United eru örugg með Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð, þetta eru tvö efstu liðin.
Svo koma Chelsea, Liverpool og Leicester í baráttunni um hin tvö sætin. Liverpool hefur verið á mjög góðu skriði að undanförnu og er komið í fjórða sæti fyrir lokaumferðina, með jafnmörg stig og Leicester en betri markatölu; fjórum mörkum betra. Chelsea er einu stigi á undan.
Chelsea á útileik við Aston Villa, Liverpool á heimaleik við Crystal Palace og Leicester á heimaleik við Tottenham í lokaumferðinni.
Evrópudeildin
Liðið sem endar í fimmta sæti deildarinnar fer í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Sigurvegarar FA-bikarsins eiga einnig að fara í Evrópudeildina, en svo gæti farið að Leicester endi þar. Þá fer liðið í sjötta sæti einnig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Fyrir lokaumferðina er West Ham í sjötta sæti með þremur stigum meira en Tottenham í sjöunda sæti.
Sambandsdeildin
UEFA er að fara af stað með nýja Evrópukeppni, Sambandsdeildina sem verður fyrir neðan Meistaradeildina og Evrópudeildina. Liðið sem vinnur deildabikarinn á að fara í Sambandsdeildina en það er Manchester City sem vann deildabikarinn. Það verður því liðið sem endar í sjöunda sæti sem fer í hana.
Það er mikil og spennandi barátta um sjöunda sætið. Tottenham er þar núna, með jafnmörg stig og Everton. Svo kemur Arsenal með einu stigi minna. Leeds er þremur stigum frá Tottenham en markatalan gerir það í raun ómögulegt að Leeds komist upp í sjöunda sætið.
Hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni fyrir lokaumferðina.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 34 | 24 | 5 | 5 | 82 | 26 | +56 | 77 |
2 | Liverpool | 34 | 22 | 8 | 4 | 75 | 34 | +41 | 74 |
3 | Man City | 32 | 22 | 7 | 3 | 76 | 32 | +44 | 73 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Man Utd | 33 | 16 | 5 | 12 | 51 | 50 | +1 | 53 |
7 | Newcastle | 33 | 15 | 5 | 13 | 69 | 54 | +15 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 32 | 13 | 8 | 11 | 61 | 57 | +4 | 47 |
10 | Bournemouth | 34 | 12 | 9 | 13 | 49 | 60 | -11 | 45 |
11 | Brighton | 32 | 11 | 11 | 10 | 52 | 50 | +2 | 44 |
12 | Wolves | 34 | 12 | 7 | 15 | 46 | 54 | -8 | 43 |
13 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
14 | Crystal Palace | 34 | 10 | 9 | 15 | 44 | 56 | -12 | 39 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 34 | 11 | 8 | 15 | 36 | 48 | -12 | 33 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 34 | 3 | 7 | 24 | 33 | 92 | -59 | 16 |
Athugasemdir