Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. október 2018 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Real Sociedad tókst ekki að sigra Girona
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 0 - 0 Girona

Real Sociedad og Girona gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik helgarinnar á Spáni.

Heimamenn í San Sebastian áttu fleiri marktilraunir í nokkuð fjörugum leik en inn vildi boltinn ekki.

Real Sociedad hefði jafnað Real Madrid á stigum með sigri hér í dag. Það hefur verið einkennandi fyrir félagið að mistakast að leggja lakari andstæðinga að velli þrátt fyrir margar marktilraunir.

Aðeins tvö stig skilja liðin að í þéttum pakka um miðja deild, þar sem Real Sociedad er í 9. sæti með 12 stig á meðan Girona er í 15. sæti með 10 stig.
Athugasemdir
banner
banner