Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. janúar 2021 09:00
Victor Pálsson
Paredes vill sjá Messi í PSG
Mynd: Getty Images
Leandro Paredes, leikmaður Paris Saint-Germain, væri til í að sjá Lionel Messi semja við félagið ef hann yfirgefur Barcelona næsta sumar.

Paredes og Messi eru báðir frá Argentínu en talið er ansi líklegt að sá síðarnefndi fari frá Barcelona eftir tímabilið.

Paredes er sjálfur orðaður við brottför en hann hefur ekki áhuga á að yfirgefa lífið í París.

„Það er eðlilegt að vilja hafa Messi í þínu liði en það er verk stjórnarinnar að sannfæra hann um að koma," sagði Paredes.

„Það er líka ákvörðun Leo Messi. Hann mun kjósa það besta fyrir sjálfan sig en auðvitað væri frábært að fá gæðaleikmann eins og hann í okkar lið."

„Ég verð sjálfur áfram hér. Ég er ánægður í París,í þessu félagi og með þessum leikmönnum. Það myndi gleðja mig að spila hér í nokkur ár til viðbótar."
Athugasemdir
banner
banner