Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 23. apríl 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Vertonghen gæti farið frá Tottenham í sumar
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn reyndi Jan Vertonghen hefur gefið í skyn að hann gæti yfirgefið Tottenham í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

„Ég vil skrifa undir hjá réttu félagi. Það gæti verið Spurs eða annað félag," sagði Vertonghen í viðtali við Play Sports í heimalandi sínu Belgíu.

„Ég vil halda áfram að spila á meðal þeirra bestu í nokkur ár í viðbót og ég vil spila í Evrópukeppni á næsta tímabili."

„Síðan í janúar hafa nokkur félög komið með alvöru samningstilboð."

„Lið í spænsku og ítölsku deildinni eru þar á meðal en ég ætla að halda öllum möguleikum opnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner