Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. júlí 2018 13:29
Brynjar Ingi Erluson
Fjögurra ára stuðningsmaður Chelsea bauð í grillveislu - David Luiz mætti með Bakayoko og Ampadu
David Luiz fór ásamt Tiemoue Bakayoko og Ethan Ampadu í grillveislu hjá fjögurra ára gömlum strák
David Luiz fór ásamt Tiemoue Bakayoko og Ethan Ampadu í grillveislu hjá fjögurra ára gömlum strák
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er í æfingaferð í Ástralíu sem stendur en liðið er að spila gegn Perth Glory í þessum skrifuðu orðum. Þrír leikmenn liðsins mættu í grillveislu hjá fjögurra ára gömlum stuðningsmanni félagsins eftir að hafa boðið þeim í gegnum Instagram.

David Luiz, Tiemoue Bakayoko og Ethan Ampadu mættu allir í grillveislu hjá fjögurra ára gömlum stuðningsmanni. Hann bauð öllum leikmönnum Chelsea í grillveisluna í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram og fór það eins og eldur um sinu.

Þegar liðið lenti í Ástralíu var ákveðið að senda þrjá leikmenn í grillveisluna en Luiz, Bakayoko og Ampadu fengu það hlutverk og skemmtu þeir sér konunglega.

Bakayoko og Ampadu gáfu honum merktar treyjur sem voru einnig áritaðar en David Luiz gert gott betur og lofaði stráknum að hann myndi skora gegn Perth Glory og ákvað að búa til fagn með stráknum.

Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner