Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. ágúst 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áslaug Munda heldur í Harvard: Kveð uppáhaldsliðið mitt
Áslaug Munda í leik með Blikum í sumar.
Áslaug Munda í leik með Blikum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili. Hún er á leið í Harvard háskólann í Bandaríkjunum.

Áslaug Munda spilaði með Blikum í 8-1 sigri gegn Gintra í forkeppni Meistaradeildarinnar á laugardag. Hún var mögnuð í leiknum.

Eftir leikinn deildi hún því á samfélagsmiðlum að um væri að ræða síðasta leik hennar í bili með Breiðabliki.

„Kveð uppáhaldsliðið mitt í bili með bestu Blikaknúsunum," skrifaði hún á Instagram en framundan hjá henni er ævintýri í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Það var sagt frá því í maí að Áslaug Munda og liðsfélagi hennar, Hildur Þóra Hákonardóttir, væru á leið í Harvard, sem er einn virtasti háskóli í heiminum.

Það eru spennandi tímar framundan hjá þeim báðum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner