Charlie Wyett hjá The Sun segir að James Milner sé besti leikmaðurinn í liði Liverpool. Þetta sagði hann um Milner á Sky Sports.
Milner kom til Liverpool árið 2015 og hefur verið í algeru lykilhlutverki frá því hann kom. Frammistaða hans síðasta árið hefur verið ótrúleg og var hann til að mynda stoðsendingahæstur í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð er liðið fór í úrslitaleikinn.
Þá hefur hann byrjað þetta tímabil af krafti og Wyett hjá Sun hefur tekið vel eftir því.
„James Milner hefur verið besti leikmaður Liverpool á tímabilinu. Þetta sýnir manni bara hvað hann er frábær. Hann er mjög vanmetinn leikmaður og hefur alltaf verið það," sagði
„Hann var ekki metinn að verðleikum í enska landsliðinu."
„Hver einasti þjálfari sem hefur þjálfað hann þekkja hans gæði og jafnvel á þessum aldri er hann með svakaleg áhrif á vellinum."
„Utan vallar er hann eins og hann hugsar vel um sig og á hann skilið mikið hrós og hann fær þá frá Jürgen Klopp,"
"He wasn't appreciated enough by England"@CharlieWyett praises in-form James Milner.
— Sunday Supplement (@SundaySupp) September 23, 2018
Could he make an international return?
Watch Sunday Supplement now on Sky Sports PL. pic.twitter.com/wRkFEIwhor
Athugasemdir