Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 24. mars 2021 06:00
Victor Pálsson
England: Jökull spilaði í þriðja tapi Exeter í röð
Mynd: Getty Images
Jökull Andrésson var á sínum stað í byrjunarliði Exeter í gær sem spilaði við Oldham í ensku fjórðu deildinni.

Jökull varði mark Exeter í leiknum en liðið þurfti að sætta sig við 2-1 tap sem eru alls ekki góðar fréttir.

Exeter er fjórum stigum frá Newport County í sjöunda sæti deildarinnar sem er umspilssæti um laust sæti í þriðju deild.

Exeter mistókst að leggja Oldham og var að tapa sínum þriðja leik í röð eftir töp gegn Tranmere og Cheltenham.

Næsti leikur Exeter er gegn Salford en aðeins tvö stig skilja liðin að í áttunda og níunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner