Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. apríl 2021 20:20
Aksentije Milisic
Sjáðu atvikið: Átti Balbuena að fá rautt? - „Hreinsar bara boltann"
Mynd: Getty Images
Fabian Balbuena, varnarmaður West Ham, fékk beint rautt spjald í leik liðsins gegn Chelsea í dag.

Chelsea vann þennan gífurlega mikilvægan leik í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Á 81. mínútu var Balbuena með knöttinn og hreinsar hann burt. Í kjölfarið hafna takkarnir á honum á fæti Ben Chilwell.

VAR skoðaði atvikið og ákvað að senda Chris Kavanagh, dómara leiksins, til að skoða atvikið. Hann reif upp rauða spjaldið og var David Moyes, stjóri West Ham, langt því frá að vera sáttur.

Chelsea hélt út og vann leikinn með einu marki gegn engu. Gary Lineker var ekki sáttur með þennan dóm en hann segir að Balbuena hafi einungis verið að hreinsa boltann burt.

Þetta atvik má sjá hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner