Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. ágúst 2021 18:58
Ívan Guðjón Baldursson
Valverde skrifar undir sex ára samning við Real Madrid
Mynd: EPA
Real Madrid er búið að staðfesta að miðjumaðurinn öflugi Federico Valverde verði áfram hjá félaginu næstu árin.

Valverder er 23 ára gamall og á 104 leiki að baki fyrir Real þrátt fyrir ungan aldur, auk 29 leikja fyrir Úrúgvæ.

Valverde, sem þykir einn af bestu miðjumönnum sem Úrúgvæ hefur alið af sér, er búinn að skrifa undir sex ára samning við spænska stórveldið, sem gildir til 2027.

Valverde hefur byrjað báða deildarleiki Real Madrid á tímabilinu í fjarveru Toni Kroos sem er meiddur. Luka Modric meiddist einnig á dögunum og tók Isco hans sæti í byrjunarliðinu í ótrúlega fjörugu jafntefli gegn Levante.
Athugasemdir
banner
banner
banner