Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu milli klukkan 12 og 16:00 á laugardaginn en Elvar Geir Magnússon er staddur erlendis.
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings og Jónas Guðni Sævarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur, mættu í málstofuna og ræddu ýmis málefni tengd deildinni.
Farið var um víðan völl og rætt um launamál leikmanna, samstarf félaganna við KSÍ og markaðsmálin, árskýrslur félaganna í deildinni, hvernig má bæta umgjörð og fjölga fólki á vellinum, gervigrasvæðinguna, dómaramál og fleira.
Nú er hægt að hlusta á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins á laugardaginn voru þeir Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Boas Hinriksson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @tomthordarson og @benediktboas.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Athugasemdir