Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. nóvember 2019 15:07
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Bowen náði í stig fyrir Hull
Jarrod Bowen skoraði bæði mörk Hull
Jarrod Bowen skoraði bæði mörk Hull
Mynd: Getty Images
Middlesbrough 2 - 2 Hull City
1-0 Marcus Tavernier ('7 )
2-0 Ashley Fletcher ('26 )
2-1 Jarrod Bowen ('71 )
2-2 Jarrod Bowen ('75 )
Rautt spjald:Marvin Johnson, Middlesbrough ('37)

Jarrod Bowen sá til þess að Hull City gerði 2-2 jafntefli við Middlesbrough í ensku B-deildinni í dag.

Hinn ungi og efnilegi Marcus Tavernier kom Boro yfir á 7. mínútu áður en Ashley Fletcher tvöfaldaði forystuna á 26. mínútu.

Boro varð fyrir blóðtöku á 37. mínútu er Marvin Johnson fékk að líta rauða spjaldið en það var Jarrod Bowen sem nýtti sér það í þeim síðari.

Hann skoraði tvö mörk á fjórum mínútum. Hann er því kominn með 12 mörk í 18 leikjum á tímabilinu en hann hefur verið orðaður við Newcastle United að undanförnu.

Lokatölur í dag 2-2. Hull er í 14. sæti með 23 stig en Boro í 21. sæti með 14 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner