Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. mars 2019 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ráðist á Gary McAllister í Leeds
Gary McAllister lék með Liverpool á leikmannaferli sínum.
Gary McAllister lék með Liverpool á leikmannaferli sínum.
Mynd: Getty Images
Fyrrum fótboltamaðurinn Gary McAllister varð fyrir líkamsárás í Leeds um helgina. BBC segir frá.

McAllister, sem lék meðal annars með Leeds og Liverpool á sínum leikmannaferli, var kýldur í andlitið og þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi.

McAllister starfar í dag sem aðstoðarþjálfari Steven Gerrard hjá Rangers í Skotlandi.

McAllister, sem er 54 ára, hafði snætt kvöldverð í Leeds með eiginkonu sinni þegar ráðist var á þau. Sauma þurfti 10 spor í andlit hans eftir árásina.

Hann var að bíða eftir leigubíl þegar ráðist var á hann.

Lögreglan í Jórvíkurskíri er með málið til rannsóknar.
Athugasemdir
banner