Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. júní 2020 16:30
Elvar Geir Magnússon
Solskjær: Nemanja hefur sjaldan spilað betur
Nemanja Matic.
Nemanja Matic.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær telur að Nemanja Matic sé í formi lífs síns en miðjumaðurinn fékk góða dóma eftir 3-0 sigur Manchester United gegn Sheffield United í gær.

Matic var valinn til að vera djúpur á miðjunni bak við Paul Pogba og Bruno Fernandes.

Eftir leikinn þá hrósaði Solskjær leikmanninum sérstaklega.

„Nemanja hefur sjaldan spilað betur. Hann stýrði miðjunni í dag og reynsla hans var okkur mikilvæg," segir Solskjær.

„Ég er gríðarlega ánægður með að sjá það besta frá Nemanja og hann verður mikilvægur fyrir okkur."

Serbinn skrifaði undir nýjan samning við Rauða djöflana í mars og er bundinn út næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner