Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. júlí 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
Leggur Chelsea nú áherslu á Skriniar?
Mynd: EPA
Milan Skriniar, varnarmaður Inter, heldur áfram að vera orðaður við Chelsea. Lundúnafélagið hefur verið að vinna í að fá Jules Kounde en er nú búið að játa sig sigrað þar sem hann er sagður hafa valið Barcelona.

Þá er talið að Chelsea, sem þarf að styrkja varnarleik sinn, leggi aukna áherslu á ða reyna að fá slóvakíska miðvörðinn.

Paris Saint-Germain hefur einnig áhuga á Skriniar en hefur ekki verið tilbúið að ganga að 70 milljóna evra verðmiða Inter. Þá hefur einnig verið fjallað um áhuga Tottenham á leikmanninum.

Skriniar er 27 ára gamall og hefur verið hjá Inter síðan 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner