Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 25. desember 2020 14:15
Brynjar Ingi Erluson
Milan ætlar að losa sig við tvo varnarmenn
Mateo Musacchio í leik með Milan
Mateo Musacchio í leik með Milan
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan ætlar að losa sig við þá Leo Duarte og Mateo Musacchio í janúar en ítalski miðillinn MilanNews greinir frá þessu.

Musacchio er 30 ára gamall Argentínumaður sem spilar sem miðvörður en hann kom til félagsins frá Villarreal fyrir þremur árum og hefur spilað 73 leiki.

Hann hefur þó ekki fengið mínútu á þessu tímabili og verður samningslaus næsta sumar.

Samkvæmt MilanNews þá ætlar MIlan að losa sig við Musacchio í janúar og þá myndi brasilíski miðvörðurinn Leo Duarte fylgja honum.

Duarte hefur spilað þrjá leiki á tímabilinu þar af einn leik í Seríu A en hann er 24 ára gamall og kom frá Flamengo á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner