Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   sun 26. maí 2019 21:46
Egill Sigfússon
Gústi Gylfa: Við höldum í við Skagamenn sem eru á mikilli hraðferð
Gústi Gylfa var að vonum sáttur að leikslokum í kvöld
Gústi Gylfa var að vonum sáttur að leikslokum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Breiðablik fór á Origo völlinn í kvöld og vann 0-1 sigur á Val í 6. umferð Pepsí Max-deildar karla. Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks var virkilega ánægður með stigin þrjú til að fylgja eftir sjóðheitu ÍA liði.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  1 Breiðablik

„Frábær þrjú stig, við vorum vel skipulagðir, pressuðum Valsara svolítið hátt og uppskárum þrjú stig, ég er gríðarlega ánægður með liðið í heild sinni og held að þetta hafi verið sanngjarn sigur. Bæði lið voru á höttunum eftir þremur stigum en við fengum þau í dag sem er mikilvægt fyrir okkur í toppbaráttunni. Við erum að reyna að halda í við Skagamenn sem er á mikilli hraðferð og þá var mjög mikilvægt að fá þessi þrjú stig."

Breiðablik klúðruðu mörgum dauðafærum í dag og Ágúst sagði það sýna góðan karakter að halda áfram og skora á endanum.

„Það er karakter að halda áfram eftir það, Valsarar segjast hafa fengu tvö lögleg mörk dæmd af sér en við þurfum ekki að hugsa um það. Við skoruðum og héldum hreinu og ég er mjög ánægður með það."

Thomas Mikkelsen var ekki í leikmannahópnum í dag vegna meiðsla en Ágúst væntir þess að hann verði klár í næsta leik.

„Hann er léttmeiddur, við treystum honum ekki til að spila í dag, það er leikur á fimmtudaginn og leikur á sunnudaginn og við væntum þess að hann verði klár þá."
Athugasemdir
banner
banner
banner