Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 26. maí 2021 21:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pepsi Max-kvenna: Þróttur skoraði aftur fimm í Garðabæ
Frábær sigur hjá Þrótti.
Frábær sigur hjá Þrótti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 1 - 5 Þróttur R.
0-1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('16 )
0-2 Katherine Amanda Cousins ('35 , víti)
0-3 Katherine Amanda Cousins ('52 )
0-4 Lea Björt Kristjánsdóttir ('61 )
0-5 Shaelan Grace Murison Brown ('74 )
1-5 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('85 )
Lestu nánar um leikinn

Þegar Stjarnan og Þróttur Reykjavík mættust í Garðabæ í fyrra þá enduðu leikar með tíu marka jafntefli. Í kvöld voru skoruð sex mörk og átti Þróttur fimm þeirra.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir kom Þrótti yfir eftir rúman stundarfjórðung. Hún skoraði þá eftir glæsilegan undirbúning Andreu Rutar Bjarnadóttur.

Stjarnan miklu betur en Þróttarar tóku forystuna. Á 27. mínútu bjargaði markaskorarinn Ólöf Sigríður á marklínu eftir hornspyrnu Stjörnunnar. Heimaliðið hótaði því verulega að jafna metin en á 34. mínútu dró til tíðinda er Þróttur fékk víti.

„Svellköld Katie Cousins fer á punktinn og setur boltann í hægra markmannshornið, alveg við stöngina," skrifaði Mist Rúnarsdóttir og Þróttarar komnar í 2-0.

Þróttarar hefðu getað bætt við þriðja markinu fyrir leikhlé en staðan var 2-0 í hálfleik.

Gestirnir úr Laugardal gengu svo frá leiknum í seinni hálfleik. Katie Cousins gerði sitt annað mark eftir hornspyrnu Andreu Rutar. Lea Björt Kristjánsdóttir gerði svo fjórða mark Þróttar með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

„ÞRÓTTARAR ELSKA AÐ SKORA FIMM MÖRK Á SAMSUNG-VELLINUm" skrifaði Mist þegar Shaelan Grace Murison Brown gerði fimmta mark Þróttar. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir klóraði í bakkann fyrir Stjörnuna á 85. mínútu og lokatölur 1-5. Frábær seinni hálfleikur hjá Þrótti.

Þetta er fyrsti sigur Þróttar í Pepsi Max-deildinni í sumar. Þær eru í fjórða sæti með sex stig. Stjarnan er í sjötta sæti með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner