Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 26. maí 2021 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Schmeichel: De Gea sýnt að hann sé besti markvörður Man Utd
Leikmenn Roma áttu í basli með David de Gea
Leikmenn Roma áttu í basli með David de Gea
Mynd: EPA
Mynd: EPA
David de Gea mun að öllu líkindum verja mark Manchester United gegn Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Dean Henderson hefur varið mark United í úrvalsdeildinni að undanförnu.

Peter Schmeichel, fyrrum markvörður Manchester United, hefur sýna skoðun á hvor markvörðurinn sé betri.

„Ég myndi byrja með David de Gea, klárlega," sagði Schmeichel við BBC.

„David hefur verið í tíu ár hjá félaginu og það má segja að hann hafi verið besti leikmaður liðsins á þessu kseiði. Hann datt í smá lægð fyrir um ári síðan en hann hefur sýnt að hann er besti markvörður Manchester United."

Schmeichel kom inn á frammistöðu de Gea gegn Roma í seinni undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar. Sá spænski varði eins og óður maður og var valinn maður leiksins,

„Leikurin gegn Roma fyrir þremur vikum hefði átt að vera eitt vandræðalegasta augnablik í sögu félagsins. Hefði hann ekki spilað þá hefðu þeir getað fallið úr leik þrátt fyrir að hafa leitt 6-2 eftir fyrri leikinn. Ég man eftir fjórum ótrúlegum vörslum frá honum," sagði Schmeichel.

Rætt hefur verið um að byrjunarlið Manchester United í kvöld geti svipað mjög til liðsins sem spilaði gegn Fulham fyrir rúmri viku. Leikurinn hefst klukkan 19:00 í kvöld.
Athugasemdir
banner