Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 26. júlí 2020 16:35
Ívan Guðjón Baldursson
David Luiz bætti met þegar hann braut á Welbeck
Mynd: Getty Images
David Luiz er afar umdeildur leikmaður en hann er samningsbundinn Arsenal út næstu leiktíð.

Þessi 33 ára miðvörður er í byrjunarliði Arsenal sem er að spila við fallbaráttulið Watford í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar þessa stundina.

Arsenal komst í þriggja marka forystu í fyrri hálfleik en Troy Deeney minnkaði muninn fyrir Watford þegar hann þrumaði knettinum í netið af vítapunktinum.

David Luiz var dæmdur brotlegur þegar hann sparkaði í Danny Welbeck innan vítateigs. Hann setti þar með nýtt úrvalsdeildarmet, en þetta var fimmta vítaspyrnan sem er dæmd á hann á deildartímabilinu.

Staðan er 3-2 þegar stundarfjórðungur er eftir af leiknum og er Watford með þunga pressu á Arsenal þessa stundina.


Athugasemdir
banner
banner
banner