Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. ágúst 2021 10:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Norwich að fá portúgalskan landsliðsmann?
Mynd: Getty Images
Norwich er í viðræðum við Real Betis um kaup á portúgalska landsliðsmanninum William Carvalho.

Carvalho er miðjumaður sem á að baki 68 landsleiki. Hann er uppalinn hjá Sporting en gekk í raðir Betis fyrir tímabilið 2018-19.

Hann er 29 ára djúpur miðjumaður og vill Norwich styrkja þá stöðu hjá sér.

Carvalho lék ekki með Betis í fyrstu umferð spænsku deildarinnar og kom inn á sem varamaður í 2. umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner