Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. mars 2021 17:50
Aksentije Milisic
Arteta vill fá Fekir til Arsenal
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum frá Spáni þá vill Mikel Arteta, stjóri Arsenal, fá framherjann Nabil Fekir, til liðsins í sumar.

Þessi 27 ára gamli Frakki hefur skorað þrjú mörk og lagt upp sex í 25 leikjum á þessu tímabili í La Liga hjá Betis. Liðið er í mikillri baráttu um Evrópusæti á næstu leiktíð.

Arteta hefur mikinn áhuga á Fekir og vill fá hann til London strax í sumar samkvæmt spænskum miðlum. Arteta vildi fá Fekir síðasta sumar ef liðinu hefði mistekist að fá Dani Ceballos aftur frá Real Madrid.

Fekir er samningsbundinn Betis til 2023 en ekki er vitað hvaða upphæð Skytturnar séu tilbúnar til að borga fyrir þennan leikmann. Fyrir þremur árum var Fekir nálægt því að ganga til liðs við Liverpool frá Lyon en það gekk ekki í gegn. Spurning hvort hann komist í ensku úrvalsdeildina næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner