Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. mars 2021 19:45
Aksentije Milisic
PSG sagt undirbúa tilboð í Meslier
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino hefur áhuga á að fá markvörð Leeds United, Illan Meslier, til liðsins.

Meslier hefur staðið sig vel hjá Leeds í vetur í ensku úrvalsdeildinni. Talið er að Pochettino vilji fá Hugo Lloris, markvörð Tottenham Hotspur, til liðsins en hins vegar gæti verið erfitt að fá hann yfir.

Meslier hefur haldið búrinu hreinu í átta leikjum í vetur og þar með hefur hann bætt met Joe Hart. Metið er að hafa haldið oftast hreinu í ensku úrvalsdeildinni, yngri en 21 árs.

Þessi frammistaða hefur vakið áhuga hjá PSG en Pochettino og Marco Bielsa, þjálfari Leeds United, eiga í góðu sambandi. Pochettinho hefur talað um hann eins og föður sinn.

PSG hefur einnig verið orðað við David De Gea, markvörð Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner