Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 27. júlí 2020 22:31
Egill Sigfússon
Rúnar Páll: Vorum slakir í fyrri hálfleik
Rúnar Páll og Óli Jó, þjálfarar Stjörnunnar
Rúnar Páll og Óli Jó, þjálfarar Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan fékk Víkinga í heimsókn á Samsung völlinn í kvöld í 9. umferð Pepsí Max-deildar karla og skildu liðin jöfn, 1-1.

„Þetta var hörkuleikur, bara fram og tilbaka og örugglega mjög skemmtilegt að horfa á þetta. Mér fannst við vera slakir í fyrri hálfleik, vorum ekki nógu beittir og vorum ekki að sækja á réttum svæðum. Seinni hálfleikur var miklu betri og við reyndum hvað við gátum til að fá sigurmarkið. Við förum í alla leiki til að vinna þá, en miðað við hvernig þessi leikur spilaðist og þróaðist er eitt stig fínt."

Sagði Rúnar Páll, þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn og var þokkalega ánægður með stigið.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 Víkingur R.

Stjörnumenn eru með nokkra menn á meiðslalistanum og svaraði Rúnar því eftir leik hvernig staðan er á mönnum.

„Ævar fer í aðgerð á nára á morgun og verður ekkert með næstu sex vikurnar. Jobbi er meiddur og Björn Berg Bryde líka, Halldór Orri er orðinn alveg frískur en kom ekki inn á í dag því miður. Hann verður bara að sætta sig við það maðurinn! Þórarinn Ingi æfir og æfir, vonandi getur hann spilað eitthvað í sumar en það er svolítil bjartsýni í því, við sjáum hvað setur."
Athugasemdir
banner
banner