Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. júlí 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Fellaini skoraði þrennu á sjö mínútum
Kínverska Ofurdeildin hafin
Fellaini fagnar marki.
Fellaini fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellaini fór á kostum í 1. umferð kínversku Ofurdeildarinnar.

Kínverska Ofurdeildin var frestað vegna kórónuveirufaraldursins en hófst á laugardaginn.

Fellaini, sem er fyrrum miðjumaður Everton og Manchester United, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Shandong Luneng sem vann 3-2 sigur gegn Dalian Pro.

Það sem meira er, að þá skoraði Fellaini öll þrjú mörk sín á sjö mínútna skeiði seint í seinni hálfleiknum.

Frábær byrjun á deildinni hjá Fellaini en öll mörkin hans má sjá hér að neðan.

Dalian Pro 1-(1) Shandong Luneng - Marouane Fellaini goal from r/soccer


Dalian Pro 1-(2) Shandong Luneng - Marouane Fellaini brace from r/soccer


Dalian Pro 1-(3) Shandong Luneng - Marouane Fellaini hat trick from r/soccer


Athugasemdir
banner