Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. ágúst 2021 19:08
Victor Pálsson
Zouma búinn í læknisskoðun
Mynd: EPA
Kurt Zouma er búinn í læknisskoðun hjá West Ham og er að ganga í raðir félagsins frá Chelsea.

Sky Sports greinir frá því að varnarmaðurinn sé búinn í læknisskoðun og mun gera fimm ára samning við West Ham.

Zouma er 26 ára gamall hafsent en hann kom frá Saint-Etienne til Chelsea fyrir sjö árum síðan.

Zouma er ekki fyrstur á blað hjá Thomas Touchel, stjóra Chelsea, og fékk grænt ljós á að fara.

Chelsea reynir að fá til sín Jules Kounde frá Sevilla en viðræður hafa staðið yfir í dágóðan tíma.

Zouma spilaði 99 deildarleiki fyrir Chelsea á þessum sjö árum og á að baki átta landsleiki fyrir Frakkland.
Athugasemdir
banner
banner