Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. nóvember 2019 23:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fletcher: Mánuður framundan sem mun ráða tímabilinu hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Darren Fletcher, fyrrum miðjumaður Manchester United, tjáði sig um Liverpool í kvöld á BBC Radio 5 Live.

„Mánuðurinn sem senn er að hefjast mun ráða öllu um tímabilið hjá Liverpool," sagði Fletcher.

„Liðið er í frábærri stöðu í deildini, við vitum hversu góðir þeir eru í Meistaradeildinni og liðið vill vinna Heimsmeistarakeppnina."

„Ef það er ekki hugsað vel um leikmennina mun liðið tapa stigum og leikmenn lenda í meiðslum (sem mun kosta)"
sagði Fletcher að lokum.

Fletcher sagði þetta eftir 1-1 jafntefli liðisns gegn Napoli í Meistaradeildinni. Framundan er mikill álagsmánaður þar sem liðið leikur í deildabikarnum, HM félagsliða, úrvalsdeildinni og lokaleikinn gegn Salzburg í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner