Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 19:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nógu gamall til að keyra og því nógu gamall til að spila fótbolta
Harvey Elliott.
Harvey Elliott.
Mynd: EPA
Hinn 18 ára gamli Harvey Elliott var í byrjunarliði Liverpool þegar liðið gerði jafntefli í stórleik þriðju umferðar í ensku úrvalsdeildinni.

Hann átti fínan leik og eru Liverpool stuðningsmenn mjög spenntir fyrir honum.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hrósaði táningnum mjög eftir 1-1 jafnteflið við Chelsea.

„Ef þú ert með aldur til að keyra, þá ertu með aldur til að spila fótboltaleik. Hann er á réttum stað. Hann er gáfaður leikmaður. Hann virtist ekki vera þreyttur í eina sekúndu í kvöld og hélt alltaf áfram."

„Harvey Elliott var mjög góður. Tengingin á milli hans, Salah og Alexander-Arnold er mjög góð," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner