Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. ágúst 2022 11:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Antony ekki í hóp hjá Ajax - Nálgast Man Utd
Mynd: EPA

Hinn 22 ára gamli Antony nálgast Manchester United en hann er ekki í hópnum hjá Ajax sem er að spila gegn Utrecht í hollensku deildinni þessa stundina.


Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur United boðið upphæð sem Ajax vill fyrir leikmanninn sem er talið vera í kringum 100 milljónir punda.

Hann gæti orðið leikmaður United á næstu tveimur sólarhringum en ekki er búist við því að viðræður við leikmanninn muni ganga illa þar sem hann virðist hafa beðið eftir þessu sjálfur ansi lengi.

Þá telur Sky að United muni einnig reyna fá Cody Gakpo leikmann PSV.


Athugasemdir
banner
banner