Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2022 16:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neves brjálaður: Hann átti aldrei að klára leikinn
Fabian Schar
Fabian Schar
Mynd: Getty Images

Pedro Neto var heppinn að sleppa ómeiddur eftir að Fabian Schar tæklaði hann í leik Newcastle og Wolves í dag.


Atvikið átti sér stað strax í upphafi síðari hálfleiks þar sem Schar fór ansi hátt með takkana á undan sér í Neto. Schar uppskar gult spjald, atvikið var skoðað í VAR og spjaldið stóð.

Neto þurfti á aðhlynningu að halda og á endanum gat hann haldið leik áfram en leikurinn var stopp í tæpar fimm mínútur á meðan það var hlúið að honum.

Ruben Neves leikmaður Wolves var alls ekki sáttur með þetta atvik.

„Það sáu þetta allir, ég trúi þesssu ekki. Neto var rispaður frá hné niður að ökklanum, hann var heppinn að vera heill eftir þetta. Þetta var klárt rautt spjald. Leikmaður Newcastle átti aldrei að klára leikinn," sagði Neves.


Athugasemdir
banner
banner
banner