Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 28. október 2019 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Henderson: Klopp breytti hugarfarinu hjá okkur
Jordan Henderson
Jordan Henderson
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að Jürgen Klopp, stjóri félagsins, hafi breytt hugarfari leikmanna síðustu ár og það skóp meðal annars sigurinn gegn Tottenham í gær.

Liverpool vann níunda leikinn af tíu mögulegum í deildinni í gær en liðið er á toppnum með 28 stig eftir tíu umferðir.

Kane kom Tottenham yfir snemma í leiknum en Liverpool kom til baka með marki frá Henderson og Mohamed Salah.

„Hugarfarið okkar verður betra með hverju árinu. Stjórinn hefur breytt því hjá okkur og hugarfarið er magnað í hópnum," sagði Henderson.

„Þegar við lendum í erfiðri stöðu þá komum við til baka og við þurfum að vera með þetta hugarfar allt tímabilið því þetta mun verða erfitt og það mun ekki allt ganga upp eins og við viljum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner